Overview
Vörur fyrir börn

Sefandi snuð í stærð 0
Til að veita þér hugarró: Loksins er fáanlegt snuð sem styður við þróun góms, tanna og kjálka í stað þess að hindra hana. Nú geta börn notað snuð án hættu á aflögun kjálka og tanntilfærslu. Þróað af sérfræðingum í tannréttingum
- image
- image
- image
- image

CURAPROX Baby snuðband
Snuðband í stíl frá CURAPROX Baby, samanstendur af snuðbandi og klemmu. Fáanlegt í bláu, appelsínugulu og bleiku.
- image
- image
- image
- image
- image

naghringur
Þessi snjalla hönnun á naghring býður upp á áhugaverða áferð, hringlu og fyrsta tannbursta barnsins. Naghringurinn hjálpar til við að minnka tanntökuverk og stuðlar að hreyfiþroska ásamt því að undirbúa börn fyrir fyrsta tannburstann sinn. Þróað í samstarfi við dr. Nadiu-Marinu Kellerhoff við Bern-háskóla.
- image
- image
- image

CURAPROX Baby tannbursti
Nú getur hvert barn hlakkað til að bursta tennurnar, allt frá fyrstu tönn: Burstahárin – fjölmargir fínir Curen® þræðir – eru svo mjúkir að ómögulegt er að skaða viðkvæma himnuna í munninum. Með fæti og gúmmíklæddum burstahaus. Þróað í samstarfi við Bern-háskóla.
- image
Vörur fyrir börn
CURAPROX for babies and infants
Thanks to biofunctionality, the CURAPROX Baby products work in perfect harmony with the natural development of every aspect of your baby’s mouth, from their jaw and teeth to their breathing.

Komumst hjá spöngum
Það er engin leið betri til þess að koma í veg fyrir langtímaafleiðingar og ójöfnur á borð við skakkt bit eða bitlokun en sú að sleppa snuðum alfarið. Það er hins vegar ekki alltaf í boði en sérstök lögun CURAPROX snuða gerir það að verkum að þér er óhætt að leyfa barninu þínu að sjúga snuð. Þróað af tannréttingasérfræðingnum dr. Herbert Pick.

Of mikill þrýstingur er skaðlegur
Hefðbundin snuð orsaka gjarnan bitlokun og aflögun kjálka: þau valda of miklum þrýstingi á efri góminn. Þessi þrýstingur stigmagnast við lofttæmið sem myndast við sog. Með CURAPROX snuðum þróast efri gómurinn án nokkurs þrýstings og ekkert lofttæmi myndast.

Eiginleikar CURAPROX Baby snuðanna
- Flatur endi og hliðarvængir koma í veg fyrir krossbit og tryggja að tannboginn þróist rétt
- Efri gómurinn tekur ekki á sig of bogasveigða lögun, komið er í veg fyrir munnöndun með því að stuðla að venjubundinni neföndun
- Flatt skaftið kemur í veg fyrir opið bit og skjöldurinn ýtist frá kjálkanum til að hindra bitlokun
- Sveiflubundin sílikonhimnan hjálpar til við að aftra kyngingartregðu
- Líkindi við brjóst styðja við það að barnið sjúgi af yfirvegun
- Áferðin á yfirborðinu þjónar því hlutverki að aðskilja yfirborðin sem tryggir að munnvatn þornar fljótt undir himnunni og veldur ekki ertingu í húðinni
- Virkni lífefna styður náttúrulegt vaxtarferli
- Algjörlega örugg í notkun – laus við skaðleg efni á borð við bisfenól (BPA), falöt og asóliti

